Akstur undir áhrifum fíkniefna hefur tekið fram úr akstri undir áhrifum áfengis - og hefur raunar aukist svo snarlega á síðustu misserum á Íslandi að líkja verður við faraldur á vegum úti.
Þetta kemur fram í sláandi fréttaviðtali í umræðuþættinum 21 á Hringbraut í kvöld þar sem Einar Magnús Magnússon, sérfræðingur á Samgöngustofu, Jón Magnús Kristjánsson, yfirlæknir á bráðamóttöku Landspítalans og Þórir Ingvarsson lögreglufulltrúi hjá Lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu ræða hræðilegar afleiðingar þessar þróunar sem meeðal annars birtist í stórauknum árásum út úr lyfjaðra ökumanna á lögregluþjóna og heilbrigðistarfsfólk.
Þremenningarnir segja þetta algerlega nýjan veruleika sem bregðast þurfi við með samstilltu átaki, en algengt sé orðið að starfsfólk á vakt þurfi að verja sig fyrir árásum alls konar fólks undir áhrifum alla vega efna sem allt eins brýtur allt og bramlar á vettvangi og ræðst að því með brotin spegulbrot eða hvaðeina skaðræðistól sem hendi er næst.
Frétta- og umræðuþátturinn 21 hefst klukkan 21:00 í kvöld eins og nafnið gefur til kynna.