Fíkn á dagskrá: krónískur heilasjúkdómur

\"Fíkn er krónískur sjúkdómur í heila og það verður að meta árangur meðferðar í því ljósi\". Þetta segir Valgerður Rúnarsdóttir, yfirlæknir á Vogi og fyrsti íslenski læknirinn með fíknlækningar sem sérgrein.

Hún er gestur Páls Magnússonar í öðrum hluta þáttaraðarinnar Fíkn - íslenska leiðin, sem sýndur var á Hringbraut í gærkvöld og verður endursýndur í dag, en þar er fjallað á faglegum og manneskjulegum nótum um þetta eitt helsta heilsufarsvandamál Íslendinga sem svo að segja hver einasta fjölskylda á landinu þekkir til.

Valgerður segir að líta verði á fíkn eins og aðra króníska sjúkdóma; það sé góður árangur að halda fólki einkennalausu um lengri eða skemmri tíma þótt sjaldan sé hægt að segja að sjúklingurinn sé endanlega læknaður.

Þátturinn Fíkn - íslenska leiðin, er frumsýndur öll fimmtudagskvöld klukkan  20:00 og endursýndur strax klukkan 22:00, en þættirnir eru svo allir sjáanlegir á vef stöðvarinnar að aflokinni sýningu.