„fíkn er sjúkdómur, ekki glæpur“

„Frú Ragnheiður nefnist athvarf á hjólum fyrir fólk sem notar vímuefni í æð. Þar geta fíklar fengið öruggan búnað til neyslunnar. Þangað geta húsnæðislausir einnig leitað og fengið til dæmis meðferð við sýkingum. Heimsóknum til Frú Ragnheiðar fjölgaði um 38 prósent frá árinu 2017 til ársins 2018.“

Á þessum orðum hefst leiðari Morgunblaðsins í dag. Þar segir að á þeim stutta tíma sem Frú Ragnheiður hefur verið til staðar hafi komið í ljós að þörfin sé mikil.

Málinu er vikið að neyslurýmum fyrir fíkla og talin þörf á að opna og útfæra þau á sem bestan hátt. „Nú er áformað að opna neyslurými þar sem fíklar geti nálgast hreinar sprautunálar og fengið aðra aðstoð og er frumvarp um málið frá Svandísi Svavarsdóttur heilbrigðisráðherra til umsagnar á Alþingi.“

Bent er á að fjöldi Íslendinga noti fíkniefni í æð á hverju ári. „Í frumvarpinu um neyslurýmin segir að um 700 einstaklingar noti fíkniefni í æð hér á landi árlega. Svala Jóhannesdóttir, verkefnisstýra Frú Ragnheiðar, telur að fjöldinn, sem noti fíkniefni í æð reglulega, sé á bilinu fimm til sex hundruð.“

„Ópíóíðar hafa farið um eins og faraldur og valdið miklum skaða á undanförnum árum. Oft ánetjast fólk lyfjunum eftir að hafa tekið þau að læknisráði til að lina þjáningar. Í Bandaríkjunum hefur verið lýst yfir neyðarástandi vegna þeirra. Talið er að 52 hafi látið lífið í fyrra vegna lyfjaeitrunar og voru útköll á höfuðborgarsvæðinu vegna ofneyslu rúmlega 450. 2017 létu 30 lífið vegna ofneyslu á lyfseðilsskyldum lyfjum. Augljóst er að bregðast þarf við þessari plágu og sömuleiðis þarf að hjálpa þeim, sem eru í viðjum hennar,“ segir einnig.

Vakið er máls á því að lögreglan hafi gagnrýnt frumvarpið á þeirri forsendu að ekki sé heimild fyrir „refsilausu svæði“ fyrir fíkniefnaneytendur. „Eins og frumvarpið sé nú verði lögreglu áfram skylt að leggja hald á ólögleg ávana- og fíkniefni og gera þau upptæk. Koma verði fram í frumvarpinu hversu mikið magn af þessum efnum neytendur megi hafa meðferðis í neyslurýminu.“

Að lokum segir að þörf sé á að sníða vankanta sem þessa af frumvarpinu. „Baráttan gegn fíkniefnum heldur áfram. Hún snýst um að stöðva útbreiðslu þeirra og ráðast gegn þeim, sem smygla þeim til landsins og dreifa þeim. Eftirlit með dreifingu lyfseðilsskyldra lyfja hefur verið hert. Um leið þarf að koma til liðs við fíkla, hjálpa þeim að takmarka skaðann af neyslunni og losna úr henni. Fíkn er sjúkdómur, ekki glæpur.“