Festust á bíl inni á milli aurskiða

Ferðafólk á fólksbíl sat fast inni á milli tveggja aurskriða sem féllu á Siglufjarðarveg utan við Strákagöng í gærkvöld, en mikið vatnsveður gekk yfir svæðið í gær og í nótt og var Hvanneyrarbrautin á Siglufirði sem fljót yfir að líta um tíma.

Samkvæmt upplýsingum lögreglunnar á Akureyri var fólkinu komið til bjargar og fékk það gistingu í nótt, en starfsmenn Vegagerðarinnar munu kanna aðstæður með morgn­in­um og opna veg­inn á ný en hægt er að kom­ast frá Sigluf­irði um Héðins­fjarðargöng­in og Ólafs­fjörð. Áður en Héðins­fjarðargöng komu þá hefði þetta þýtt að leiðin til Siglu­fjarðar væri ófær en svo er ekki nú. 

Mikið vatnsveður hefur gengið yfir landið síðustu daga og er þess skemmst að minnast að fjöldi ferðafólks varð að leita sér aðstoðar á Seyðisfirði fyrr í vikunni eftir að tjaldstæði bæjarins var umlukið vatni.

Vatnsveðrið nær þvert yfir landið, en veg­ur­inn norðan Bjarna­fjarðar á Strönd­um er lokaður vegna skriðufalla og vatna­vaxta, sam­kvæmt upp­lýs­ing­um frá Vega­gerðinni.

Veðurstofa Íslands gaf í gær út viðvörun vegna mikillar úrkomu geng­ur nú yfirr landið norðan- og aust­an­vert og á að haldast fram á kvöld. Sér­stak­lega er varað við úr­komu á norðan­verðum Strönd­um og norðan­verðum Vest­fjörðum en þar gæti skriðuhætta auk­ist. Bú­ast má við veru­legu af­rennsli á norðan­verðu land­inu og frá jökl­um miðhá­lend­is­ins. Ferðafólk er hvatt til að gæta varúðar.

Spáð er norðan og norðaust­an hvassviðri norðvest­an og vest­an til fram eft­ir degi og með því er von á snörp­um vind­hviðum við fjöll. Einnig er von á mik­illi rign­ingu á Strönd­um til há­deg­is.

Veður­spá fyr­ir næsta sól­ar­hring er annars á þennan veg: Norðaust­læg átt, 13 til 20 m/​s norðvest­an- og vest­an til, en 5 til 13 ann­ars staðar. Víða súld eða rign­ing, en úr­komu­lítið sunn­an- og suðvest­an­lands. Mik­il rign­ing á Strönd­um fram und­ir há­degi. Fer að draga úr vindi norðvest­an til á land­inu eft­ir há­degi og létt­ir frek­ar til á Suðvest­ur- og Vest­ur­landi. Hiti 10 til 16 stig sunn­an heiða, en 3 til 10 stig fyr­ir norðan.