Ferlið og dyggðin

Kínverjar eru meðal elstu og sérstæðustu menningarþjóða heims og hafa átt einkennilegri feril en þær flestar.  Ríki þeirra hefur staðið lengur en nokkurt annað ríki sem sögur fara af  - í 4000 ár -  og var bæði voldugt og háþróða löngu fyrir daga þjóðveldisins á Íslandi.

Síðustu hundrað árin - og þó helst síðustu áratugir - hafa skipt sköpum í allri þróun Kína og Kínverja. Og valdið meiri straumhvörfum í lífi þeirra og hugsunarhætti og siðvenjum en nokkuða annað í langir sögu landsins og þjóðarinnar.

Margt sem nú er rætt um í fjölmiðlum í tengslum við 19. landsþing Kommúnistaflokks Alþýðulýðveldisins Kína er í hugum Kínverja viðkvæmt og vandmeðfarið. Ekki síst hin pólitíska þróun í Kína sem erfitt er að fjalla um án allra hleypdóma. Þó ekki sé nokkur þörf á að fara leynt með sínar eigin skoðanir.

En það er staðreynd - kommúnisminn hefur unnið hug og hjörtu Kínverja í ríkari mæli en við á Vesturlöndum kærum okkur um að játa. Og þessa staðreynd verður heimurinn að kannast við ef nokkur von á að vera til áframhaldandi friðar.

Langtíma áform Kínverja eru einföld.

En þau eru að binda enda á þann glundroða sem fylgir skiptingu heimsbyggðarinnar í andstæðar fylkingar.

Kínverjar telja eðlilegt að hún sameinist í eina ríkisheild undir forsjá Alþýðulýðveldisins Kína sem Kommúnistaflokkur Kína stjórnar með styrkri hendi.

Stósísk þolinmæði sem hjálpar Kínverjum til að þola raunir í fortíðinni mun verða enn nauðsynlegri þegar þeir leggja inn á nýjar brautir erfiðleika og umskipta í leit sinni að valdi og velmegun.

[email protected]