Ferðavefurinn Fararheill eða fararheill.is birti í gær róttæk og stóryrt skrif, pistil, undir fyrirsögninni: „Þess vegna er Ólafur Ragnar skíthæll dauðans“. Ekki er vitað hvort ritstjóri vefjarins skrifaði pistilinn.
Þessari stóru fyrirsögn mun hafa verið fylgt eftir með orðum um að árið byrjaði ekki vel. Í pistilinum stóð: „Skítlegur forseti Íslands ákveður að verðlauna Björgólf Jóhannsson, forstjóra Icelandair, fálkaorðunni fyrir framlag sitt...“
Nokkru eftir að pistilinn birtist var honum eytt af síðunni.
Hringbraut hefur sent faraheill.is fyrirspurn vegna málsins. Á heimasíðu kemur fram að vefurinn hafi verið starfræktur allt frá árinu 2009 og munu margir nýta sér hann til upplýsinga og bókana á ferðalögum.
Samkvæmt heimildum Hringbrautar voru rökin fyrir hinu hörðu orðum um orðuveitinguna þau að að forstjórinn Björgólfur hefði ekkert fram að færa og að forsetinn væri að dekra auðmannaelítu.
Geta má þess að forseti ákveður ekki hverjir fái orður heldur sérstök orðunefnd sem Guðni Ágústsson stýrir.