Skásta ferðaveðrið suðvestanlands

Enn er útlit fyrir norðlægar átti næstu daga og allt fram yfir verslunarmannahelgina, mestu ferðahelgi ársins á Íslandi - og má gera ráð fyrir úlpu- og peysuveðri um allt norðan- og austanvert landið.

Þrátlátar norðanáttir hafa einkennt þetta sumar, þá loksins það kom undan vetrarríkinu sem einkenndi landið vel fram í júní. Fremur skýjað verður yfir landinu næstu daga og hætt við rigningu og skúrum víða um land.

Hiti breytist lítið næstu daga og verður á bilinu 6 til 14 stig sem á að heita fremur dapur sumarhiti á þessum árstími, en hitatölur í kringum 20 gráðurnar hafa verið harla fátíðar það sem af er sumri og virðast ekki liggja í kortunum fyrir næstu daga.

Niðurstaðan er þessi; áfram tiltölulega kalt fyrir norðan og austan, en skaplegt veður á mörKum rigningar og skýahulu um sunnan og vestanvert landið.

Og útilegufólk! Ekki gleyma föðurlandinu!