Ferðaþjónustu léttir

Þungu fargi er létt af ferðaþjónustunni um allt land við undirritun kjarasamninga Samtaka atvinnulífsins og VR, Starfs­greina­sam­bands­ins, Flóa­banda­lags­ins, Stétt­Vest og Land­sam­bands ís­lenskra versl­un­ar­manna í gær. Allsherjarverkfalli 6. júní er þar með afstýrt.


Töluvert hefur verið um afbókanir ferðamanna á hótelum og gistiheimilum um allt land vegna yfirvofandi verkfalla, en ljóst er að mestu tjóni fyrir ferðaþjónustuna hefur verið afstýrt með samningunum.  Allt bendir til stöðugleika næstu þrjú árin, sem samningarnir verða í gildi, samþykki félagsmenn þá í atkvæðagreiðslum á næstunni.