Ferðaþjónustan í fararbroddi

Á tólf mánaða tímabili voru að jafnaði 17.293 launagreiðendur á Íslandi og fjölgaði þeim um 688 frá fyrra tímabili.

Launþegar voru samtals 185.600 sem er fjölgun um 8.700.

Launþegum fjölgar mest í ferðaþjónustu og byggingariðnaði en þó hefur dregið þar úr hraða. Eins og áður þá fækkar launþegum í sjávarúrvegi.

Launagreiðendur í ferðaþjónustu eru 1.926 og launþegar í einkennandi greinum ferðaþjónustu eru 30.500. Er þetta fjölgun um 2.400.

Einyrkjar með rekstur á eigin kennitölu eru hér ekki taldir með.

[email protected]