Ferðamálastofa fékk góða gesti í liðinni viku þegar hér dvaldi 12 manna hópur ferðaþjónustufólks frá Eþíópíu. Tilgangurinn var að kynnast ferðaþjónustu á Íslandi og sá Ferðamálastofa um skipulag ferðarinnar. Í lok heimsóknarinnar var skrifað undir viljayfirlýsingu um samstarf á milli Ferðamálastofu og Tourism Ethiopia. Heimsóknin var hluti af samstarfsverkefni stjórnvalda í Eþíópíu og International Finance Corporation (IFC), einnar af stofnunum Alþjóðabankans.
Í eþíópíska hópnum voru meðal annars fulltrúar frá stjórnsýslu ríkis og borgar, Tourism Ethiopia, Ethiopian Airlines, flugvallarins í Addis Ababa, samtaka ferðaþjónustunnar auk fulltrúa IFC. Hópurinn fékk kynningu á starfsemi Ferðamálastofu, Icelandair og Isavia auk kynninga frá Íslandsstofu, Lögreglunni á Keflavíkurflugvelli, Bláa Lóninu, Íslenska Ferðaklasanum, Hellisheiðarvirkjun, Landnámssetrinu í Borgarnesi, Friðheimum, SAF, Icelandair Hotels, Gagarín, Reykjavik Geothermal og Mountaineers of Iceland.
Ein ástæða heimsóknarinnar var áhugi á stopover-líkaninu, sem hefur verið notað um áratuga skeið í uppbyggingu og markaðssetningu ferðaþjónustunnar hérlendis sem tenging á milli Evrópu og N-Ameríku. Flugvöllurinn í Addis Ababa er þriðji stærsti flugvöllur Afríku og aðalstarfsstöð Ethiopian Airlines, stærsta flugfélags Afríku.