Oddný G. Harðardóttir, fyrrverandi fjármálaráðherra og formaður Samfylkingarinnar, segir að komist Samfylkingin í ríkisstjórn að loknum þingkosningum muni gisting fara í hærra þrep virðisaukaskattsins.
„Hótel- og gistiþjónusta fluttist úr 14% þrepinu niður í 7% í mars árið 2007. Þegar til framtíðar er litið, þá held ég að það sé rétt að þessi þjónusta sé í almenna skattþrepinu en sé ekki umbunað umfram aðrar stórar atvinnugreinar. Það að ein af okkar meginstoðum í samfélaginu sé á ríkisstyrk er kannski ekki alveg heppilegt til framtíðar litið,“ sagði Oddný, þá fjármálaráðherra, í samtali við Morgunblaðið í ágúst 2012.
Nú er lægra þrep virðisaukaskattsins 11 prósent, ekki sjö einsog var þá.
Oddný vill einnig auka veiðigjöld frá útgerðinni en er ekki eins viss um að leggja á ný auðlegðarskatt, allavega ekki einsog hann var.
Oddný segir að verði stjórnarskipti, eftir kosningar, verði ný ríkisstjórn að gera breytingar á því fjárlagafrumvarpi sem nú er í smíðum.
Viðtal við Oddnýju er á dagskrá Hringbrautar klukkan 21:45 í kvöld.