Ferðaþjónusta í eyjum í uppnámi

Uppnám er í ferðaþjónustu í Vestmannaeyjum vegna ógreiðra samgangna á milli lands og eyja. Miklar fjárfestingar í gistiaðstöðu og veitingahúsum á síðustu árum skila engum arði og raunar miklu tapi sakir þess að Eyjamenn fá lítinn sem engan skerf af fjölgun erlendra ferðamanna til landsins.


150 dagar eru nú liðnir frá því Herjólfur gat síðast siglt um Landeyjarhöfn. Veturinn hefur vissulega verið hryssingslegur, en þessi litla notkun á nýju höfninni er þá langt undir áætlun. Í upphafi var gert ráð fyrir að 20% ársins væri ekki hægt að sigla um höfnina, en hlutföllin hafa snúist við, því einungis fimmting ársins er hægt að nota hana, hinn meginhluta ársins er ófært neðan Landeyjarsanda.


Þessar hrakfarir hafa vitaskuld komið illa við ferðaþjónustuna í Vestmannaeyjum sem tók mikinn kipp fyrstu árin eftir að Landeyjarhöfn komst í gagnið, en þá var hún í mikilli notkun, eða allt þar til sanddæluskip höfðu ekki lengur undan nokkrum árum eftir opnun hafnarinnar - og hefur heldur sigið á ógæfuhliðina síðan.


Nú er rætt um að kaupa til landsins öflugri skip til að halda rásinni inn í höfnina opinni, en ákvörðun þess efnis liggur þó ekki enn fyrir.


Á meðan sýpur ferðaþjónustan í Eyjum seiðið af samgönguleysi.