Ferðamönnum vísað frá reykjadal

Tveir starfsmenn Umhverfisstofnunar þurftu í dag að vísa frá töluvert mörgum ferðamönnum sem ætluðu að ganga inn Reykjadal, en gönguleiðinni var lokað í morgun vegna aurbleytu.
 
Bleytan og mikið álag vegna fjölda ferðamanna hefur leitt til jarðvegsskemmda og gæti svæðið verið lokað í allt að tvær vikur. Það ræðst af því hvaða áhrif veður og hitastig hafa á aðstæður í dalnum. Að því er fram kemur á vef Ríkisútvarpsins í morgun voru tveir starfsmenn frá Umhverfisstofnun við lokunarpóst sem settur hafði verið upp í mynni dalsins en þar kemur fram að svæðinu hafi verið lokað og að brot varði við refsingu.
 
Reykjadalur er þriðji vinsæli ferðamannastaðurinn sem Umhverfisstofnun lokar í þessum mánuði.  Fjaðrárgljúfrum var lokað um miðjan þennan mánuð vegna aurbleytu og  þá var svæði á Skógaheiði einnig lokað til að vernda gróður umhverfis gönguslóðann.