Ferðamönnum skemmt yfir snjónum

Enda þótt tíðarfarið það sem af er ári hafi farið nokkuð verulega í taugarnar á flestum  landsmönnum sem vart hafa fundið fyrir sumarhita þótt komið sé fram í júní eru erlendir ferðamenn nánast snortnir yfir þessu veðurlagi.


Þannig var því að minnsta kosti farið í Mývatnssveit í gærdag þar sem þessi mynd var tekin austan Námaskarðs en éljagangur og slydda var túristinum ágætlega að skapi enda gátu þeir tekið ljósmyndir jafnt af auðri jörð og hvítri á leið sinni frá Akureyri austur í þessa fjölsóttu náttúruparadís sem dregur að sér hálfa milljón ferðamanna á hverju sumri.


Hætt er við því að ferðamenn um þessar slóðir taki myndir af grárri jörð á næstu dögum, enda vart nema fimm gráðu hiti í kortunum og útlit fyrir slydduél um næstu helgi þegar á að heita svo að heil vika sé liðin af júnímánuði.