Samkvæmt talningu Ferðamálastofu og Isavia voru brottfarir erlendra farþega frá landinu um Keflavíkurflugvöll rúmlega 2,3 milljónir á liðnu ári. Um er að ræða rétt rúmlega 120.600 fleiri brottfarir en árið 2017 og aukningin því 5,5 prósent milli ára. Þetta er meðal þess sem kemur fram í fréttatilkynningu frá Ferðamálastofu.
Aukningin á fjölda brottfara erlendra farþega er þó talsvert minni en undanfarin ár. Á tímabilinu 2013-2017 var hún á bilinu 24,1 prósent til 40,1 prósent milli ára. Brottfarir erlendra farþega hafa rúmlega tvöfaldast frá árinu 2014, þegar þær voru um 969.000.
Langflestir erlendra farþega sem flugu af landi brott á liðnu ári voru Bandaríkjamenn, eða tæplega 695.000 og næstir þar á eftir komu Bretar, tæplega 298.000. Þjóðverjar voru svo í þriðja sæti, rúmlega 139.000, Kanadabúar í því fjórða, tæplega 100.000 og Frakkar í því fimmta, rúmlega 97.000. Í næstu sætum á eftir komu Pólverjar, Kínverjar, Spánverjar, Danir, Svíar, Ítalir og Hollendingar.