Líklegt er að aldrei hafi verið fleiri Íslendingar á erlendri grundu á sama tíma en um þessa páska, en tölur um fjölda íslenskra ferðalanga í marsmánuði verða ekki aðgengilegar fyrr en eftir páska. Um 60.000 Íslendingar fóru úr landi páskana 2017 og það met er í hættu.
Margir eru líka á ferðinni innanlands um páskana og trekkja helstu skíðasvæði landsins fólk að, enda margir sem vilja ekki verja páskunum annars staðar en í brekkunum. Ekki skemmir fyrir að nokkuð vel hefur viðrað til skíðaiðkunar og ekkert páskahret í kortunum út helgina, að því er fram kemur í Morgunblaðinu í dag.