Ferðamenn sækjast í skipulagðar ferðir

Skipulagðar ferðir á borð við jöklaferðir og hvalaskoðunarferðir eru vinsælar á meðal ferðamanna sem koma hingað til lands. 137 þúsund ferðamenn komu til landsins í júnímánuði og vörðu samanlagt um 3,8 milljörðum króna í slíka ferðaþjónustu. 
Hver ferðamaður greiddi því að meðaltali tæplega 30 þúsund krónur fyrir skipulagðar ferðir í júní. Samkvæmt Ferðamálastofu var kaup á ferðaþjónustu umfangsmesti flokkur ferðamannaveltu í mánuðinum. Þar á eftir greiddu erlendir ferðamenn mest fyrir gistiþjónustu, en ljóst er að gífurleg eftirspurn er eftir skipulagðri ferðaþjónustu á Íslandi í dag.