Í gær var kynnt samstarfsverkefni Hertz, Slysavarnafélagsins Landsbjargar og Sjóvá um sérhannað ökupróf fyrir ferðafólk. Verkefnið gengur út á að allir sem leigja bíl hjá Hertz munu þurfa að horfa á myndband og taka í kjölfarið rafrænt próf. Verður bílaleigubíll ekki afhentur fyrr en leigutaki hefur staðist prófið.
Þetta kemur fram í fréttatilkynningu frá Sjóvá.
Þar segir að Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir ferðamálaráðherra hafi sett verkefnið formlega af stað í gær með því að þreyta prófið og standast það með glans.
Í tilkynningunni segir einnig að bílaleigan Hertz hafi verið leiðandi í forvarnarstarfi og sé sífellt að leita nýrra leiða til að ná til ferðafólks og auka þannig öryggi í umferðinni. Í byrjun verði fyrirkomulagið við lýði í útibúi bílaleigu Hertz við Flugvallarveg en í kjölfarið verði það útfært í fleiri útibúum. Vonast Hertz eftir því að fyrirkomulagið verði svo tekið upp hjá fleiri bílaleigum.
Landsbjörg mun halda utan um verkefnið og verður prófið aðgengilegt á vef Safetravel.