Ferðamálaráðherra svarar fyrir sig

Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir, ferðamálaráðherra segir að það liggi í augum uppi að allt sem gert er í uppbyggingu ferðaþjónustunnar sé með skattfé. Hins vegar viti hún mæta vel að þessar tekjur koma frá ferðaþjónustunni sjálfri.

Turisti.is greindi frá því í gær að ummæli Þórdísar Kolbrúnar Reykfjörð Gylfadóttur, ferðamálaráðherra á Stöð 2 um að milljarða fjármagn til framkvæmda við ferðamannastaði sé í boði skattgreiðenda hafi farið all verulega illa í forsvarsfólks íslenskrar ferðaþjónustu. Sumir töldu að ráðherrann hafi með orðavali sínu skaðað atvinnugreinina og skapað henni óvild hjá almenningi  

Hinir ósáttu bentu á að gistináttaskatturinn sem settur var á til að fjármagna framkvæmdir við ferðamannastaði standi undir fjárveitingunni. Ekki væri um að ræða beina skatta af almenningi. Gistináttgjaldið geri meira en að borga fyrir alla milljarðana, 2,8 milljarða króna sem nýlega voru settir í uppbyggingu ferðaþjónustunnar.

Þórdís Kolbrún svarar þessu á sama vettvangi og segir að hún hafi tekið skýrt fram að ferðaþjónustan skili gífurlegum tekjum í ríkissjóð á hverju ári.

Turisti.is ræddi við Þórdísi Kolbrúnu: „Mér þykir leitt að fáir virðast hafa tekið eftir því og einblína í staðinn á fyrirsögnina. Menn verða einfaldlega að lesa fréttina og hvað ég sagði. Þegar orð mín eru skoðuð í samhengi lýsa þau góðum skilningi á því að ferðaþjónustan skilar ríkissjóði miklum tekjum. Á sama tíma er allt sem ríkið fjármagnar að sjálfsögðu fengið hjá skattgreiðendum, það liggur í augum uppi. Og erlendir ferðamenn eru líka skattgreiðendur. Og íslenskir skattgreiðendur greiða líka gistináttagjald. Allt fer það í sama sjóðinn, ríkissjóð,” segir hún.