Pílagrímaganga er ein tegund ferðalaga sem hefur algera sérstöðu. Einstaklingar ganga í spor pílagríma á öldum áður. Við þekkjum vinsældir Jakobsvegarins á Spáni sem endar við dómkirkjuna í Santiago de Compostela.
Linda settist niður með Séra Elínborgu Sturludóttur, presti í Stafholtsskirkju í Borgarfirði. Elínborg er ein þeirra sem stofnaði áhugamannafélag um pílagrímagöngur. Gengið er í allt að fimm daga á milli kirkna hér heima á Íslandi og endastöðin yfirleitt Skálholt sem má kannski segja að sé okkar Santiago de Compostela hér á fróni.
Ísland getur vel tekið á móti fleira ferðafólki ef Íslendingar fara að ráðum þeirra þjóða sem hafa náð að dreifa túristum eins og best verður á kosið yfir landið og árið. Þetta segir einn helsti ferðamálasérfræðingur landsins, Edward H. Huibjens, prófessor við Háskólann á Akureyri og fyrrverandi forstöðumann Rannsóknarsmiðstöðvar ferðamála í höfuðstaðnum nyrðra. Hann ræðir við Sigmund Erni í Ferðalaginu í kvöld.
Kristinn R. Ólafsson er manna fróðastur um Madríd borg og þróunina á Spán frá því að hnn fluttist þangað fyrir 35 árum en Kristinn náði í skottið á einræðistíð Francos. Sigmundur Ernir fær brot af þeim afsjó af fróðleik og sögum sem Kristinn – eða bara Krói – býr yfir.
Linda sest í leiðsögumannasætið við hlið rútubílstjórans Óskars Jens Stefánssonar formanns Sleipnis og spurði hann út í starfið fyrr og nú.
Ferðalagið byrjar klukkan 20:00 í kvöld og er endursýnt næstu daga.