Kennslustund í notkun vegabréfa og borgaraþjónusta við Íslendinga á ferðalögum. Ferðalag til Búrma, undur Mývatns og staða rútufyrirtækja er í þætti kvöldsins.
Það er mikilvægt að vita hvernig og hvar maður á að nota vegabréfið sitt og hvenær tímabært er að endurnýja það. Það verður boðið upp á kennslustund í notkun vegabréfsins í þættinum Ferðalaginu á Hringbraut í kvöld en þar verður tekið úr á borgaraþjónustu Utanríkisráðuneytisins þar sem daglega er leyst úr margvíslegum vanda íslenskra ferðalanga á erlendri grund.
Þátturinn er annars fjölbreyttur í meira lagi; rithöfundurinn Unnur Jökulsdóttir er tekinn tali um nýútkomna bók sína um undur Mývatns, heimahornaflakkarinn Finnbogi Rútur Arnarson fræðir áhorendur um nýlega ferð hans til Búrma, eða Myanmar eins og þetta fjarlæga land er líka kallað - og svo verður fjallað um deilur sem risið hafa innan stéttar langferðabílstjóra þar sem útlendum ökumönnum virðist vera boðin laun sem eru langt undir því sem almennt þekkist innan geirans hér á landi.
Ferðalagið byrjar klukkan 20:00 í kvöld og er í umsjón Lindu Blöndal og Sigmundar Ernis. Þátturinn er endursýndur og einnig á tímaflakkinu.