Fágætisferðaþjónusta. Linda skoðar lúxusferðamennsku sem Þorsteinn Örn Guðmundsson, framkvæmdastjóri Iceland Luxury veit meira um. Ráðstefnugestir og starfsfólk í hvataferðum erlendis frá eru meðal annars þeir ferðamenn sem njóta lúxusferðamennsku.
Sigmundur Ernir hitti Arnar Eggert Thorodssen, tónlistargagnrýnanda vegna skoskrar menningarhátíðar á Kex Hostel. Arnar Eggert bjó í Skotlandi um árabil og var í rífandi stuði í skotapilsinu sínu þegar Sigmundur hitti á hann niðri við Skúlagötu.
Árni Gunnarsson, forstjóri Flugfélags Íslands hitti Sigmund á Reykjavíkurflugvelli en tvöfalt afmæli innanlandsflugsins er í ár. Áttatíu ár eru frá því að Flugfélag Akureyrar var stofnað og 20 ár frá því að Flugfélag Íslands var sett á fót í núverandi mynd með sameiningu innanlandsdeildar Flugleiða og Flugfélags Norðurlands.
Þórhildur Elínardóttir hjá Samgöngustofu fer yfir öryggu erlendra ferðamanna á vegum úti hér á landi en tugir ferðamanna slösuðust í umferðinni í fyrra. Kínverskir ferðamenn eiga erfiðast eða að átta sig í umferðinni á Íslandi.
Brot úr viðtalinu við Þórhildi: