Nýja stjórnin stöðugt á ferðalögum

Gunnar Bragi Sveinsson, utanríkisráðherra, er ferðakóngurinn í samanburði á ferðalögum ráðherra tveggja síðustu ríkisstjórna. Gunnar Bragi hefur verið erlendis meira en fjórða hvern dag frá því hann tók við völdum utanríkisráðherra fyrir 777 dögum.

Fréttablaðið bar saman ferðalög ráðherra ríkisstjórnar Jóhönnu Sigurðardóttur og Sigmundar Davíðs Gunnlaugssonar á fyrstu tveimur starfsárum þeirra. Til að gæta sanngirnis er kostnaður við ferðalög ráðherra umreiknaður á verðlag dagsins í dag. Samantekt blaðsins er athyglisverð og er hér vitnað til hennar: 

Tímabilið sem er til skoðunar hjá fyrri stjórn er frá því að minnihlutastjórnin tók við þann 1. febrúar 2009 til 1. júní 2011. Hjá núverandi stjórn er það 23. maí 2013 til 1. júní 2015.

Ríkisstjórn Sigmundar hefur eytt töluvert meira fjármagni í ferðir ráðherra heldur en ríkisstjórnin sem sat á undan. Sitjandi ríkisstjórn hefur nýtt rúmar 157 milljónir króna í ferðalög og ríkisstjórn Jóhönnu um 104 milljónum.

Ríkisstjórn Sigmundar virðist vera meira fyrir það að sinna verkefnum erlendis en samtals hafa ráðherrar ríkisstjórnarinnar eytt 625 dögum erlendis en ráðherrar í ríkisstjórn Jóhönnu 550 dögum.