Ferðagjöfin vel nýtt á KFC

Ferðagjöf stjórnvalda er lítið nýtt á Suðurnesjum ef miðað er við aðra landshluta.

Allir einstaklingar 18 ára og eldri með lögheimili á Íslandi fá Ferðagjöf að andvirði 5.000 krónur frá stjórnvöldum til að styðja við bakið á íslenskri ferðaþjónustu.

Samkvæmt frétt sudurnes.net höfðu einungis um níu milljónir króna skilað sér til fyrirtækja á Suðurnesjum í síðustu viku.

Til samanburðar þá hafa fyrirtæki á Suðurlandi og Austfjörðum fengið yfir 20 milljónir í kassann vegna ferðagjafarinnar.

Þær níu milljónir sem hafa verið nýttar á Suðurnesjunum höfðu að mestu leiti skilað sér á tvær hendur. Bláa lónið hefur fengið um sex milljónir króna í sinn hlut og skyndibitakeðjan KFC tæplega tvær milljónir króna. Önnur fyrirtæki á svæðinu hafa fengið undir milljón í tekjur frá ferðaávísuninni, en þar má meðal annars nefna Hótel Keflavík, bílaleigurnar Happy Campers og CC Cars auk veitingastaðanna Langbest og Fishhouse.