Seyðisfjarðardeild Rauða krossins opnaði í gærkvöld fjöldahjálparstöð fyrir ferðamenn vegna úrhellisrigningar á Seyðisfirði, en tjaldsvæði bæjarins var nánast umflotið vatni eftir allt vatnsveðrið.
Guðjón Sigurðsson, formaður Seyðisfjarðardeildar Rauða krossins, segir við visir.is í morgun að um fimmtán ferðamenn hafi gist í hjálparmiðstöðinni í nótt. Einhverjir Íslendingar hafi og leitað í miðstöðina eftir að hafa þurft að snúa frá tjaldstæðinu í bænum.
Nú hefur stytt upp eystra eftir að himnarnir opnuðust og fer Norræna frá Seyðisfirði í kvöld sem þýðir að gistirými losnar en aðstoðin var hugsuð fyrir þá ferðamenn sem ætluðu að gista í tjöldum. Fjöldahjálparstöðin verður því ekki opin í nótt.
Sjálfboðaliðar frá Eyjafjarðardeild Rauða krossins mönnuðu fjöldahjálparstöðina.Samkvæmt vef Veðurstofu Íslands var rigningin 75,5 millimetrar á Seyðisfirði í gær. Hún var hins vegar 99 millimetrar á Dalatanga.
Ferðafólki hjálpað vegna úrhellis
Fleiri fréttir
Nýjast