Ferðafólk nálgast 2 milljónir í ár

Isavia, sem rekur Keflavíkurflugvöll hefur uppfært þriggja mánaða gamla spá sína um fjölda erlendra ferðamanna á Íslandi í ár og reiknar nú með að þeir verði ríflega 1,7 milljón.

Spáin gerir því ráð fyrir 37% aukningu ferðafólks í ár frá síðasta ári, en þá komu hingað til lands nærfellt 1,3 milljónir ferðamanna. Viðbótin nemur 470 þúsund ferðamönnum.

Sérfræðingar stofnunarinnar meta það svo að stór hluti þessarar fjölgunar skili sér til landsins utan svonefnds háannatíma, frá hausti fram á vor.

Augljóst er að álag á Flugstöð Leifs Eiríkssonar mun aukast til muna vegna þessarar fjölgunar, en um völlinn fara langtum fleiri en þeir einir sem skila sér inn til landsins. Áætlað er að alls 6,2 milljónir ferðalanga hafi viðkomu hér á landi á ferðum sínum yfir Atlantshafið í ár, samanborið við 4,8 milljónir á síðasta ári.

Flugstöðin verður stækkup á þessu ári og á að verja 20 milljörðum til verksins.