Hrafn Gunnlaugsson kvikmyndaleikstjóri er gestur Sigmundar Ernis í Mannamáli á Hringbraut í kvöld og er óhætt að segja að þar láti hann gamminn geisa, allt frá svarinu við fyrstu spurningu um ástæðu þess af hverju hann er svo umdeildur sem raun ber vitni til þeirrar síðustu hvort hann hafi tekið ferilinn fram yfir börnin sín. Hann viðurkennir í viðtalinu að enda þótt honum þyki vænt um myndir sínar þá hafi hann viljað verja meiri tíma með börnum sínum sem nú eru orðin fullorðið fólk. Hann sakni barna sinna.
Í viðtalinu kemur Hrafn inn á það sturlunarástand sem fylgir því að leikstýra kvikmynd, ræðir ítarlega um kúnstina að búa til almennilega bíómynd, vilja sinn til að gera enn eina víkingamynd, en einnig um viðburðaríka æsku sína og ungdómsár, svo sem samband hans við Davíð Oddsson sem hefur breyst frá því þeir voru Matthildingar.
Þátturinn er frumsýndur klukkan 21.00 í kvöld, landsmönnum að kostnaðarlausu.
Fer yfir litríkan feril sinn
Fleiri fréttir
Nýjast