Fer katrín fram til forseta?

Katrín Jakobsdóttir, formaður VG og bókmenntafræðingur, aftekur ekki að hún muni horfa til Bessastaða ef sveiflurnar í samfélaginu gefi henni tilefni til þess.

Þetta kom fram í útvarpsþættinum Sprengisandi á Bylgjunni í morgun en þar spurði Sigurjón M. Egilsson Katrínu um málið. Fram kom í svörum Katrínar að hún væri ekki búin að ákveða hvort hún byði sig fram til embættis forseta Íslands. Fólk væri að prófa og máta ýmsa kandídata sem væri  eðlilegt, hún væri stolt að vera hluti þess mengis.

Hringbraut greindi frá því sl. mánudag að Stefán Jón Hafstein útilokaði ekki framboð til forseta Íslands, skynji hann það þannig að hann fái stuðning til þess.