„Bjarni Ben. hefur ótvírætt vaxið sem stjórnmálamaður á kjörtímabilinu og sagði ýmislegt skynsamlegt, en það fer honum ekki vel að vera freki karlinn.“ Þannig skrifar Benedikt Jóhannesson, formaður Viðreisnar, um frænda sinn Bjarna Benediktsson, formann Sjálfstæðisflokksins, þar sem Benedikt fjallar um umræðuþáttinn á RÚV í gærkvöld.
Benedikt minnti Bjarna, í þættinum, á loforð Sjálfstæðisflokksins um að þjóðaratkvæðagreiðslu yrði um framhald viðræðna við Evrópusambandið. Bjarni aftók að það hefði verið helsta kosningaloforð sitt og síns flokks.
„Það er aldrei heppilegt að fara ekki með rétt mál. Menn geta ekki hlaupið frá sínum gömlu loforðum og gjörðum. Kannski gekk það einhvern tíma, en nú geta áhorfendur gúglað hvað menn sögðu fyrir þremur árum eða sex mánuðum,“ skrifar Benedikt.
Þetta er fyrsta návígi þeirra frænda fyrir kosningarnar.