Fer ekkert agalega í taugarnar á mér

\"Það hafa verið fréttareglur hérna sem ég veit ekki betur en hafi verið mög svipaðar. Þetta fer ekkert agalega í taugarnar á mér,\" segir Helgi Seljan umsjónarmaður Kastljóss í viðtali við Morgunblaðið í dag.

Mikil reiði hefur skapast vegna nýrrar klásúlu í siðareglum sem virðist hefta tjáningarfrelsi þeirra sem fjalla um fréttir hjá Rúv og varðar t.d. skrif þeirra á samfélagsmiðlum utan vinnutíma. Björg Eva Erlendsdóttir hefur sagt að hún muni segja sig úr stjórn Rúv m.a. vegna þessa máls.

Haft er eftir Hallgrími Indriðasyni, formanni Félags fréttamanna í Morgunblaðinu í dag, að í stóra samhenginu sé ekki um mikla breytinga að ræða hjá starfsmönnum.

Sérfræðingur í siðareglum varar mjög í sama blaði við þeirri breytingu sem hafi verið gerð.