Fengum korter til að undirbúa okkur

Jón Trausti Reynisson, annar ritstjóra Stundarinnar og Magnús Geir Eyjólfsson, fréttastjóri hjá Mannlífi eru í Ritstjórunum í kvöld og mæta til Lindu Blöndal.

Rætt er um fréttina á forsíðu Stundarinnar en í nýjasta blaðinu heldur ritstjórn blaðsins áfram  umfjöllun um viðskipti fjármálaráherra Bjarna Benediktssonar og fjölskyldu í aðdraganda hrunsins og varðar Glitni banka og fall hans – eða Íslandsbanka á þeim tíma.

Lögbannið hefur varað í 375 daga eða frá því í fyrra haust. Þrjár vikur eru síðan að Landsréttur komst að þeirri niðurstöðu að lögbannið væri ólöglegt, upplýsingarnar ættu erindi við almenning – lögbann Sýslumanns væri andstætt lýðræðishefðum og grunngildum tjáningarfrelsis að mati Héraðsdóms í febrúar sem svo Landsréttur staðfesti.

Þrotabú Glitnis – Glitnir HoldCo fór fram á lögbannið og hefur tæpa viku til viðbótar til að áfrýja til Hæstarétar. Jón Trausti segir að Stundin hafi fengið hámark korter til að undibúa sig undir heimsókn sýslumanns og lögmanna Glitnir HoldCo. Engin gögn voru tekin af ritstjórnarskrifstofunni sem öll eru á rafrænu formi – svokölluð „Glitnisgögn sem Stundin í samstarfi við The Guardian og ReykjavikMedia hafa undir höndum.

Bjarni Benediktsson tjáir sig ekki við Stundina. Magnús Geir segir það ekkert stílbrot hjá Bjarna, hann telji sig hafa svarað öllu t.d. hvernig seld voru bréf í Sjóði 9 stuttu fyrir hrun.

Jón Trausti segir betur koma í ljós í umfjöllun Stundarinnar núna að Bjarni hafði upplýsingar sem almenningur hafði ekki.

Í Ritstjórunum er einnig rætt um harkalega umræðu um kjaramál sem einkennist af tali um „óvini“ og „sturlaðar kröfur“.