Fengju mest fyrir bankana í bútum

Ríkið myndi fá mest fyrir eign sína í bönkunum með því að aðskilja fjárfestingabankastarfsemi ýmis konar frá viðskiptabankastarfsemi og selja sérstaklega. Þetta er mat Snorra Jakobssonar, sérfræðings hjá Capacent sem er í viðtali í Markaðstorginu á Hringbraut í kvöld.

Farið er vítt og breitt yfir stöðu bankana í hagkerfinu og hvernig það myndi þjóna best fólki og fyrirtækjum til lengri tíma. Snorri telur dreifingu hlutfjár til almennings óheppilega leið til að koma eignarhaldi úr höndum ríkisins.

Í þættinum er einnig rætt við Óskar Jósefsson, framkvæmdastjóra Stjórnstöðvar ferðamála, en nýverið var opnaður vefur á vegum stjórnstöðvarinnar sem hefur að geyma mælaborð ferðaþjónustunnar. Þar er hægt að fylgjast með nýjustu upplýsingum um stöðu ferðaþjónustunnar á lifandi og skemmtilegan hátt.