Framlag Íslendinga til Feneyjartvíæringsins, hin umtalaða og nánast alræmda moska í afhelgaðri kirkju á einum síkisbakka borgarinnar, fór meira fram úr fjárhagsáætlun en dæmi eru um í útrás íslenskrar myndlistar.
Uppsetning verksins og rekstur sýningarinnar átti að kosta 25 milljónir króna en raunkostnaðurin mun vera 100 milljónir króna samkvæmt heimildum sem hringbraut.is hefur aflað sér. Framúrkeyrslan stafar ekki síst af flókinni uppsetningu versksins að því er sömu heimildir segja.
Verk svissneska listamannsins Christoph Buchel, sem KÍM, Kynningarmiðstöð íslenskrar myndlistar fékk til að annast framlag Íslands að þessu sinni reyndist ekki einasta vera dýrara en forkólfar KÍM héldu í upphafi heldur langtum umdeildara en nokkur þeirra gat ímyndað sér, enda fór svo að feneysk yfirvöld lokuðu kirkjunni sem moskan var sett upp í, að því er sagt var vegna mótmæla borgarbúa sem töldu vegið að kaþóskum siðum sínum.
Eftirmál alls þessa hafa valdið titringi í stjórn KÍM en einn stjórnarmanna sagði sig úr henni á dögunum.