Feneyingar vilja sniðganga ísland

Búist er við mótmælum heimamanna í Feneyjum í dag við íslenska skálann í borginni en listaverkið sem Ísland leggur fram á Feneyjartvíæringnum í ár er sagt vera vanhelgun á kristnum gildum, svo og móðgangi ög ögrandi fyrir heimamenn.


Deilan um listaverkið, sem er endurgerð á mosku sem komið hefur verið fyrir í gamallri afhelgaðri kirkju frá fjórtándu öld í gömlu borginni, hefur náð nýjum hæðum með kröfu heimamanna um að Ítalir sniðgangi Ísland og íslenskar vörur sakir þessarar lítlsvirðingar sem verkið sýni kristnum gildum í landinu. Auglýsingaspjöldum þar sem hvatt er til að sniðganga allt sem íslenskt er hefur verið dreift um borgina en þar er Ísland sagt hafa "lítilsvirt og afhelgað tákn kristni okkar, menningu og sögulegt minni með því að setja upp mosku í kirkjunni Santa Maria della Misericordia." Á spjöldunum eru heimamenn hvattir til að svara móðgangi og ögrandi gjörðum þjóðar sem virðist enn vera ósiðmenntuð með því að sniðganga vörur hennar og tilboð varðandi ferðalög til Íslands.


Moskuverkið var sett upp í samráði við félög múslima á Íslandi og sambærileg félög á Ítalíu, svo og stjórnvöld í Feneyjum.