Hrekkjavakan er á næsta leyti og margir byrjaðir að huga að skemmtilegum búning fyrir þessa „hryllilegu“ aðfaranótt allraheilagrarmessu. Nokkrar verslanir hér á landi selja búninga í mörgum tegundum, þar fer Partýbúðin fremst í flokki þar sem finna má stórt úrval af hinum ýmsu búningum. Einn búningurinn er úr sögunni Saga þernunnar eða The Handmaid's Tale eftir kanadíska rithöfundinn Margaret Atwood.
Sögusviðið er eiræðisríkið Gíleað, sem er stjórnað af hvítum bókstafstrúarmönnum. Konur hafa það hlutverk að þjóna karlmönnunum samkvæmt flokkun eftir því til hvers þær þykja nýtast best. Þernan í sögunni hefur verið flokkuð hæf til að vera mánaðarlega leidd fyrir liðstjóra í von um að taka við sæði hans og ala honum barn. Búið er að gera sjónvarpsþætti úr bókinni sem eru mjög vinsælir.
Linda nokkur mætti á vegg Partýbúðarinnar og kvartaði:
„Ég bið ykkur um að endurskoða þá ákvörðun að setja handmaid's búninginn í sölu.“
Feminíska vefritið Knúz spyr svo:
„Jæja. Hver vill vera þolandi grófs kynferðisofbeldis, frelsissviptingar og kynbundinnar kúgunar á Hrekkjavökunni? Saga Þernunnar er jú bara bók, bara sjónvarpsþáttur,“ segir í færslunni. „Nema í Afganistan, S-Arabíu, Texas ......“
Æsa nokkur bendir á:
„Bókin í heild er skáldskapur en allt í henni á sér stað í raunveruleikanum. Þegar höfundur var spurð hvernig hún gat skáldað upp svona viðbjóð svaraði hún að hún hefði ekki skáldað neitt upp, hún púslaði raunverulegum atburðum saman í þennan söguþráð.“