Fréttakonan Margrét Erla Erlingsdóttir greindi frá tilfinningaþrungnu atviki á mótmælunum gegn innrás Rússa í Úkraínu i dag. Í færslu á Facebook-síðu sinni sagði hún frá konu sem stóð þar með eins konar „friðardúfu“ í höndunum. Sú kona reyndist ekki vera úkraínsk, heldur rússnesk.
„Hún horfði á mig og þagði í fyrstu en svo fylltust augun hennar af tárum. Nei, hún var frá Rússlandi. Hún skammaðist sín.Við féllumst í faðma á miðri götu, báðar grátandi og ég sagði henni að ég væri búin að hugsa svo mikið til hennar, til allra þeirra Rússa sem fyrirlíta þessa innrás. Við vitum að þetta er ekki í hennar nafni.“
Margrét kveður konuna hafa verið að farast úr áhyggjum yfir nánum vinum sínum sem byggju í Úkraínu og væru þar enn.
„Gæti ekki borðað. Gæti ekki sofið. Hún athugaði með þau á hverjum einasta klukkutíma til að athuga hvort það sé í lagi með þau. Svarið sem hún fær ítrekað er nei. Það er ekki í lagi með þau. Og það eina sem hún getur gert er að halda áfram að spyrja, í veikri von um að svarið breytist.“