Þorsteinn Sæmundsson, alþingismaður Framsóknarflokksins, sat hjá þegar Alþingi afgreiddi ríkisfjármálaáætlun til næstu fimm ára. Það gerði einnig Eygló Harðardóttir. „Það voru ekki samantekin ráð,“ sagði Þorsteinn í Þjóðbraut í kvöld.
En hvers vegna sat Þorsteinn hjá?
„Ég sá ekki möguleika í áætluninni til að uppfylla endurskoðun laga á almannatryggingakerfinu,“ sagði Þorsteinn og á þar við vinnu nefndar sem Pétur heitinn Blöndal veitti forstöðu og Þorsteinn tók við því hlutverki við fráfall Péturs.
Þorsteinn sagði lítið gert úr vinnu nefndarinnar og hann vilji að þessu verði breytt sem fyrst, þá eftir kosningar.
„Ég hef orðið fyrir ónæði vegna hjásetunnar og kannski fell ég á pólitískt sverð vegna þess. Og ef svo fer, þá verður bara svo að vera.“