Félagsmenn vr samþykkja verkfallsaðgerðir

Rúmlega helmingur þeirra félagsmanna VR sem höfðu atkvæðisrétt, 52,3 prósent, samþykktu í rafrænni atkvæðagreiðslu að ganga til verkfalla. Félagsmenn VR í gistiþjónustu á höfuðborgarsvæðinu og í Hveragerði og í hópbifreiðafyrirtækjum á félagssvæði VR munu því hefja verkfall á föstudaginn 22. mars. Frá þessu er greint í fréttatilkynningu frá VR.

Ragnar Þór Ingólfsson, formaður VR, segir niðurstöðuna ekki koma sér á óvart. Hann segir verkfallsátök vera grafalvarlegan hlut en að réttlætistilfinningu félagsmanna sé misboðið. „Þetta er ákall um að nú verði að setja fullan kraft í að klára samningaviðræður, annað væri ábyrgðarleysi,“ segir Ragnar Þór.

Á kjörskrá voru 959 félagsmenn VR og alls greiddu 578 þeirra atkvæði. 52,3 prósent (302 atkvæði) samþykktu verkfallsaðgerðir en 45,3 prósent (262 atkvæði) voru á móti. 2,4 prósent (14 atkvæði) tóku ekki afstöðu.