Félagsmenn eflingar samþykktu frekari verkföll

Félagsmenn Eflingar stéttarfélags samþykktu með yfirgnæfandi meirihluta greiddra atkvæða boðun verkfalla meðal starfsfólks á hótelum, í rútufyrirtækjum og hjá Almenningsvögnum Kynnisferða. Um 92 prósent þeirra sem tóku afstöðu samþykktu verkfallsboðanirnar. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Eflingu. 

Sólveig Anna Jónsdóttir, formaður Eflingar, sagði niðurstöðuna ekki koma á óvart því hún hefði fundið fyrir miklum stuðningi við aðgerðir síðustu daga. „Við erum afar ánægð með þátttöku og framkvæmd atkvæðagreiðslunnar. Félagsmenn okkar eru á einu máli um að aðgerða sé þörf. Kröfur okkar eru sanngjarnar og félagsmenn eru tilbúnir að fylgja þeim eftir af krafti.“

Af 1263 greiddum atkvæðum í öllum 7 atkvæðagreiðslunum voru 1127 sem samþykktu boðanir, 103 greiddu atkvæði gegn og 33 tóku ekki afstöðu. Þegar allar atkvæðagreiðslurnar eru lagðar saman  voru því um 92 prósent þeirra sem tóku afstöðu samþykkir verkfallsboðununum.

Á kjörskrá voru samtals 1710 einstaklingar. Heildarkjörsókn nam um 35 prósent og náði í öllum tilfellum 20 prósent lágmarks þátttökuþröskuldi.