Félagsmenn Eflingar stéttarfélags samþykktu boðun verkfalls 8. mars meðal hreingerningafólks á hótelum með miklum meirihluta greiddra atkvæða. Af 862 greiddum atkvæðum voru 769 sem samþykktu boðunina, 67 greiddu atkvæði gegn verkfalli og 26 tóku ekki afstöðu. Verfallsboðunin var því samþykkt með 89 prósent atkvæða. Þetta kemur fram í tilkynningu á vef Eflingar.
Á kjörskrá voru 7950 einstaklingar og þátttaka var því rétt tæp 11 prósent. Verkfallsboðunin telst nú samþykkt af félagsmönnum og verður afhent SA og Ríkissáttasemjara strax eftir að skrifstofur opna í dag, föstudaginn 1. mars.
Formaður Eflingar, Sólveig Anna Jónsdóttir, sagði niðurstöðuna mikinn byr undir báða vægi í komandi baráttu. „Félagsmenn hafa talað. Ég er innilega stolt af félagsmönnum okkar sem hafa sent mjög skýr og kröftug skilaboð með atkvæðum sínum. Það var ótrúlegt að upplifa andrúmsloftið á vinnustöðunum þar sem við skipulögðum atkvæðagreiðslur.“
Síðar í dag mun Efling tilkynna um víðtækari verkfallsaðgerðir sem verða samstilltar með VR og ná lengra fram í tímann.