Framganga braga gæti haft afleiðingar

Ásmundur Einar Daðason félagsmálaráðherra sagði í þingnefndaryfirheyrslu í dag, að ef sú óháða rannsókn á framgöngu Braga Guðbrandssonar sem hann vill að fari fram leiði eitthvað annað í ljós en sú niðurstaða ráðuneytisins að hann hafi ekki brotið af sér í starfi, þá „að sjálfsögðu hefur það afleiðingar.“ Ásmundur Einar nefndi einnig í þessu samhengi framboð Íslands um setu Braga fyrir Íslands hönd í Barnaréttarnefnd Sameinuðu þjóðanna.
 
„Aðalatriðið er að allt sé upp á borði í málinu og allt sé upplýst, sagði Ásmundur Einar.“ Hann sat fyrir svörum á opnum fundi velferðarnefndar í beinni útsendingu milli klukkan 11 og 12 í morgun. 
 
 

Halldóra Mogensen, formaður velferðarnefndar, hefur beðið Braga Guðbrandssyni, fyrrverandi forstjóra Barnaverndarstofu, að koma á fund nefndarinnar á miðvikudag. 

Halldóra sagði í gær að gögn í máli Braga Guðbrandssonar, fyrrverandi forstjóra Barnaverndarstofu, sýni að þær upplýsingar sem Ásmundur Einar Daðason, félagsmálaráðherra, gaf nefndinni í febrúar hafi ekki verið réttar. „Það hefði verið langeðlilegast ef við hefðum fengið niðurstöðu ráðuneytisins þá en einhverra hluta vegna var það ekki gert, einhverra hluta vegna var ákveðið að brjóta lög og láta okkur bíða í mánuð. Og það er bara mjög stórt mál,“ sagði hún í Silfrinu á RÚV í gær.