Félagsdómur kveður ekki upp dóm í dag

Félagsdómur mun ekki kveða upp dóm í dag eins og til stóð, um hvort boðun Eflingar á verkfalli hótelþerna á föstudaginn 8. mars sé lögmæt eður ei. Samtök atvinnulífsins telja atkvæðagreiðslu vegna boðunar verkfallsins ólöglega og krefjast þess að verkfallið verði dæmt ólögmætt. Þrátt fyrir knappan tíma verður uppkvaðning vegna málsins líklega ekki fyrr en síðdegis á morgun. RÚV.is greinir frá.

Arnfríður Einarsdóttir formaður félagsdóms staðfesti þetta í samtali við RÚV.

Verkfallið mun að óbreyttu hefjast klukkan tíu á föstudaginn og nær til hótelþerna sem starfa á hótelum og gistihúsum á félagssvæði Eflingar, sem er höfuðborgarsvæðið, Kjósarhreppur, Grímsnes- og Grafningshreppur, Ölfus og Hveragerðisbær. 

Deila SA og Eflingar snýst um tvennt. SA telur að aðeins þeir sem verkfallið nái til eigi að geta kosið um það, þ.e. einungis hótelþernur, en Efling telur að allir þeir sem falla undir tiltekinn kjarasamning innan ferðaþjónustunnar, þar á meðal starfsmenn í veitinga- og gistihúsageiranum, megi kjósa.

Einnig er deilt um hvers lags atkvæðagreiðslu hafi verið að ræða. SA telur atkvæðagreiðsluna vera með yfirbragði kjörfundar, þar sem gildi 20 prósent lágmarksþátttaka, en Efling túlkar hana sem póstatkvæðagreiðslu, þar sem er engin lágmarksþátttaka. Þátttaka í atkvæðagreiðslunni um verkfall hótelþerna var tæplega 11 prósent.