Félagsdómur hefur úrskurðað að atkvæðagreiðsla Eflingar vegna fyrirhugaðs verkfalls hótelþerna á morgun sé lögmætt. Úrskurðurinn var kveðinn upp í Héraðsdómi Reykjavíkur klukkan 13 í dag. Fréttablaðið greinir frá.
Verkfallið hefst því klukkan tíu í fyrramálið, á alþjóðlegum baráttudegi kvenna, og mun standa til miðnættis. Verkfallið nær til hótelþerna sem starfa á hótelum og gistihúsum á félagssvæði Eflingar, sem er höfuðborgarsvæðið, Kjósarhreppur, Grímsnes- og Grafningshreppur, Ölfus og Hveragerðisbær.
„Frábær niðurstaða sem reyndar kemur mér ekki á óvart. Ég er gríðarlega þakklát Karli Ó. Karlssyni lögmanni okkar sem flutti málið af festu en vil líka þakka Magnúsi Norðdahl, formanni kjörstjórnar Eflingar og aðallögfræðingi ASÍ, fyrir að hafa aðstoðað við okkur við að standa rétt að þessari atkvæðagreiðslu frá upphafi. Það er leitt að þurfa að leggja svona mikla orku í að verjast lagaklækjum, en verkalýðshreyfingin á sem betur fer góða að,“ segir Sólveig Anna Jónsdóttir, formaður Eflingar, um niðurstöðuna.
Samtök atvinnulífsins höfðu stefnt Eflingu fyrir félagsdóm þar sem samtökin töldu atkvæðagreiðsluna vegna boðunar verkfallsins hafa verið ólögmæta. SA taldi að aðeins þeir sem verkfallið nái til ættu að geta kosið um það, þ.e. einungis hótelþernur, en Efling taldi að allir þeir sem falla undir tiltekinn kjarasamning innan ferðaþjónustunnar, þar á meðal starfsmenn í veitinga- og gistihúsageiranum, megi kjósa.
Einnig var deilt um hvers lags atkvæðagreiðslu hafi verið að ræða. SA taldi atkvæðagreiðsluna vera með yfirbragði kjörfundar, þar sem gildi 20 prósent lágmarksþátttaka, en Efling túlkaði hana sem póstatkvæðagreiðslu, þar sem er engin lágmarksþátttaka. Þátttaka í atkvæðagreiðslunni um verkfall hótelþerna var tæplega 11 prósent.
Þrátt fyrir að félagsdómur hafi dæmt Eflingu í hag skilaði einn dómari, Guðlaugur Haraldsson, séráliti og sagðist telja atkvæðagreiðsluna hafa verið ólögmæta.