Félagsbústaðir: 155% hækkun launa

Hækkanir á launum stjórnarmanna og framkvæmdastjóra auk breyttrar framsetningar ársreiknings leiddu til þess að kostnaður Félagsbústaða vegna stjórnar og framkvæmdastjóra var nær 70 prósent hærri í fyrra en í hittifyrra. Laun framkvæmdastjóra hækkuðu um 9,8 prósent milli ára og laun stjórnarmanna voru hækkuð um 155 prósent.

 

Þetta kemur fram í svari Haraldar Flosa Tryggvasonar, formanns stjórnar Félagsbústaða, við fyrirspurn fréttastofu RÚV. Samkvæmt ársreikningi hækkaði kostnaður vegna launa stjórnar og framkvæmdastjóra úr átján milljónum í 30 milljónir. Sú tala er þó villandi vegna breytinga á framsetningu reikningsins og greiðslu stjórnarlauna.

Stjórnarmenn fengu greiddar 48 þúsund krónur á mánuði fram til 2016 og voru laun þá greidd í einu lagi eftir á. Þegar stjórnarlaunin voru hækkuð í 122 þúsund krónur á mánuði var farið að greiða þau mánaðarlega. Þetta hefur þau áhrif að í ársreikningi síðasta árs er bæði að finna stjórnarlaun fyrir árið 2016 og 2017. Hækkun stjórnarlauna má rekja til breytinga hjá Reykjavíkurborg þar sem farið var í það að samræma stjórnarlaun hjá fyrirtækjum borgarinnar. 

Föst laun framkvæmdastjóra Félagsbústaða hækkuðu um 9,8 prósent, úr 1.382.500 krónum á mánuði í 1.458 þúsund krónur á mánuði. Í síðasta ársreikningi er að auki talinn fram bílastyrkur framkvæmdastjórans upp á 140 þúsund krónur á mánuði en það var ekki gert í ársreikningi Félagsbústaða 2016. Þar að auki fékk framkvæmdastjórinn greiddar 1,4 milljónir króna í yfirvinnu í fyrra vegna „mikils og óvenjulegs“ við breytt lagaumhverfi fjármögnunar fyrirtækisins og fyrstu útgáfu skuldabréfa á vegum þess. Í svari Haraldar Flosa stjórnarformanns kemur fram að þetta sé ekki föst greiðsla.