Mannauður, félag mannauðsfólks á Íslandi, harmar ummæli sem Brynjar Níelsson, þingmaður Sjálfstæðisflokksins, lét falla í Facebook-færslu í gær.
Þar sagði hann meðal annars að „eftir að stofnanir og fyrirtæki fylltust af mannauðsstjórum hefur ófriður aldrei verið meiri. Nú er svo komið að mikilvægar stofnanir eru nánast óstarfhæfar.“
Sjá einnig: Brynjar kennir mannauðsstjórum um: „Á mínu heimili er bara einn forstjóri og hann stjórnar
Vísaði hann þar að öllum líkindum til illdeilnanna hjá embætti lögreglunnar á Suðurnesjum sem hafa verið nokkuð til umfjöllunar að undanförnu.
Í yfirlýsingu frá Mannauði segir að orð Brynjars lýsi miklu skilningsleysi, hvort sem þau séu sett fram í gríni eða alvöru.
„Við sem störfum við mannauðsmál á Íslandi leggjum okkur alla daga fram við að sinna störfum okkar af fagmennsku, starfsfólki og atvinnulífi til heilla. Það er leitt að þjóðkjörinn einstaklingur skuli með slíkri færslu gera lítið úr okkar störfum.“