Stjórn Félags atvinnurekenda (FA) hvetur sveitarfélög eindregið til að endurskoða álagningarsprósentu fasteigangjalda á atvinnuhúsnæði til mótvægis við gríðarlegar hækkanir á fasteingamati. Að óbreyttu fela þær hækkanir í sér að skattbyrði fyrirtækja þyngist um milljarða króna. Nýverið var tikynnt um miklar hækkanir fasteignamats fyrir áríð 2018.
Á höfuðborgarsvæðinu - þar sem þorri fyrirtækja á Íslandi er stasettur - hækkaði matið á atvinnuhúsnæði um 10,6%. Fasteignagjald er í eðli sínu óheppileg skattheimta á fyrirtæki sem leggst á eigið fé þeirra óháð afkomu fyrirtækja.
Ljóst er að fyrirtæki innan vébanda FA munu leita réttar síns hvað varðar útreikning og álganingu fasteignagjalda. Gera má ráð fyrir að Reykjavíkurborg verði birt stefna þess efnis síðar í sumar. Frá þessu segir í frétt frá FA.
rtá