Fékk yfir sig högg­bylgju og er enn með suð í eyranu

Hörður Harðarson, eigandi Verslun Guð­steins Eyjólfs­sonar, var staddur við bensínstöð Olís í Álfheimum þegar gas­kútur sprakk í svörtum Land Cru­iser. Hann segir að það hafi verið eins og einhver hafi skotið á bílinn hans.

Tveir voru fluttir á bráða­deild Land­spítalans og er sprengingin nú til rann­sóknar hjá lög­reglu og Vinnu­eftir­litinu.

„Ég var þarna í skjóli fyrir aftan þennan hvíta bíl sem var beint fyrir aftan þennan sem sprakk og það var eiginlega hann sem bjargaði því að bíllinn minn stórskemmdist ekki. En Það skaust einhver skrúfa eða hlutur sem ég veit ekki alveg hvað var, en það var bara eins og byssukúla hefði farið í framrúðuna hjá mér,“ segir Hörður.

Einn vegfarandi sagði Glæsibæ hafa nötrað og Hörður segir það ótrúlegt að maðurinn sem var við dæluna hafi svo staðið við hlið hans nánast óskaddaður eftir sprenginguna, en bílarnir tveir skemmdust mikið.

„Það var óhugnanlegur kraftur í þessu. Ég sat inn í bíl og var með tónlist á og að tala í símann en ég er samt enn með suð í eyranu. Ég fékk líka bara höggbylgju á mig. Þetta var svakalegt.“