Fékk vitrun og varð trúður

Heimsþekkti trúðurinn, fyrirlesarinn og læknirinn Patch Adams snýr aftur til Íslands eftir nokkra daga með fyrirlesturinn "Medicine, joy and humour" en sjónvarpskonan Sirrý fjallar um Adams í þættinum Lífsins list á Hringbraut í kvöld.


Adams hefur áður komið til landsins og fyllti þá Þjóðleikhúsið og því er brugðið á það ráð að halda fyrirlesturinn núna í Háskólabíói sem tekur tvöfalt fleiri gesti en leikhúsið. Hann kemur nú aftur til landsins að eigin frumkvæði og vinnur með Hugarafli, samtökum fólks með geðræn vandamál. Auður Axelsdóttir hjá samtökunum segir áhorfendum Hringbrautar í kvöld frá þessum skemtilega fyrirlestri og listviðburði. 


Læknirinn, sem gengur alltaf í trúðsbúningi, er sjálfur lifandi sönnun þess hve húmor, kærleikur og gleði getur bætt geðheilsuna. Hann var þunglyndur og vildi enda líf sitt þegar hann var yngri en fékk vitrun og ákvað að nota líf sitt til að gleðja aðra.


Robin heitinn Williams lék Adams í eftirminnilegri kvikmynd um líf hans og list. 


Auk Patch Adams munu íslenskir listamenn taka á móti gestum með óvæntum uppákomum í Háskólabíói 14. júní næstkomandi.