Landsréttur hefur staðfest tveggja ára fangelsisdóm gegn karlmanni sem braut þrisvar sinnum kynferðislega gegn ungri fatlaðri konu. Var maðurinn hluti af stuðningsfjölskyldu konunnar í rúm tvö ár. Grunur vaknaði um brotin þegar fyrrverandi eiginkona mannsins tók eftir því að heimsóknum ungu fötluðu konunnar fór að fækka og vildi hún helst ekki vera í kringum hann. Ræddi þá fyrrverandi eiginkona mannsins við konuna og komu þá brotin í ljós.
Maðurinn, sem er 36 árum eldri en fatlaða konan, játaði brotið fyrir dómi en hann sagðist á þessum tíma hafa verið að taka inn lyf vegna fótaóeirðar. Sagði hann að mögulegir aukaverkanir vegna lyfjanna gætu verið óvenjulegri hegðun, eins og að stunda fjárhættuspil ásamt aukinni kynhvöt. Sagði hann fyrir dómi að hann hafi haft kynferðislegt samneyti með fötluðu konunni þrisvar sinnum og í öll skipti hafi hún samþykkt. Maðurinn sagðist einnig ekki hafa verið nægilega kunnugt um andlega fötlun konunnar. Leit hann á verknaðinn frekar sem hjúskaparbrot og bað hann konuna því að segja ekki frá.
Við ákvörðun refsingar verður litið til þess að ákærði braut í þrígang gróflega gegn kynfrelsi og trausti andlega fatlaðrar konu sem vart var af barnsaldri, inni á heimili hans þar sem hún hafði áður búið sem skjólstæðingur hans og mátti telja sig óholta. Þykir það fullsannað að ákærði hafi bæði misnotað sér andlega fötlun ungu konunnar og beitt hana ólögmætri nauðung með því að nýta sér yfirburðastöðu sína gagnvart henni og traust hennar til hans til að ná fram kynferðislegum samskiptum við hana í þrjú skipti eins og lýst er í ákæru. Auk tveggja ára fangelsis var maðurinn dæmdur til að greiða konunni eina milljón króna í bætur.