Guðfinna Bjarnadóttir, fyrrverandi þingmaður Sjálfstæðisflokksins var fengin án útboðs eða auglýsingar til að stýra verkefni um eflingu læsis barna fyrir mennta- og menningarmálaráðuneytið. Fyrir það þáði fyrirtæki hennar 11,6 milljónir króna.
Þetta kemur fram í Fréttablaðinu í dag, en þar kemur fram að ráðuneytið greiddi fyrirtæki hennar og eiginmanns hennar umrædda upphæð í tvennu lagi. Verkefnið snerist um þjóðarátak vegna læsis barna í grunnskólum, en verkefnisstjórastaðan var ekki auglýst sérstaklega.
Guðfinna segir við blaðið að ráðgjafaþóknunin sé ekki sérstaklega há. Þeir taxtar sem settir hafi verið upp í samningunum séu svipaðir því sem gengur og gerist í dag. Menntamálaráðherra hafi ekki ráðið hana að verkefninu heldur hafi það verið á hendi ráðuneytisstjórans í ráðuneytinu.
\"Ég hafði heyrt af þessari vinnu eftir að Hvítbókin kom út og ráðuneytisstjóri hafði samband við mig og spurði hvort ég væri til í að stýra þessu verkefni,\" segir Guðfinna við blaðið, en hún stýrði Háskólanum í Reykjavík áður en hún settist á þing árið 2007 og sat þar í tvö ár.